Nokkrir vaskir slökkviliðsmenn tóku sig til um helgina og merktu forystubifreið flotans (24-131).
Eru menn að vonum mjög ánægðir með árangurinn.
Sjá myndir hér að neðan.
Slökkvilið Grindavíkur auglýsir stöður fyrir hlutastarfandi slökkviliðsmenn lausar til umsóknar.
Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. • Hafa góða líkamsburði, vera andlega og líkamlega heilbrigðir, reglusamir og háttvísir, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd.
2. • Hafa að lokinni reynsluráðningu aukin ökuréttindi til að stjórna vörubifreið .
3. • Hafa iðnmenntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu.
4. • Umsækjendur þurfa að standast læknisskoðun.
Nánari upplýsingar um starfið veitir slökkviliðsstjóri í síma 660 7311.
Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar 2012.
Umsóknareyðublað er á http://www.grindavik.is/
Umsóknum skal skila til: Slökkviliðsstjóri, Hafnargötu 13, 240 Grindavík, eða á netfangið slokkvilid@grindavik.is
Kveikt var í ruslagámi við Bakaríið Hérsastubb við Gerðavelli eftir hádegi í dag. Búið var að slökkva eldinn með handslökkvitækjum þegar slökkviliðið kom á staðinn og voru það hárrétt viðbrögð þar sem gámurinn var staðsettur mjög nálægt stórri hurð á húsinu.
Hurðin var orðin vel heit en ekkert tjón varð á húsinu.
Miklar líkur eru taldar á að það hafi verið kveikt í gámnum þar sem það sást til krakka
hlaupa frá vettvangi.
Félag Slökkviliðsmanna í Grindavík hefur verið með sölu á eldvarnarbúnaði á flugeldasölu björgunarsveitarinnar.
Það er einn dagur eftir í flugeldasölu sem er á föstudaginn 6.jan.
Við verðum að sjálfsögðu á staðnum með okkar sölu.
Við biðjum fólk að huga vel af öllum eldvarnarbúnaði hjá sér og koma
endilega við hjá okkur ef það eru einhverjar spurningar varðandi notkun og þörf á slíkum búnaði.
Á nýársdagskvöld var tilkynnt um eld í ruslagámi við Grunnskóla Grindavíkur.
Ekki er vitað um eldsupptök en greiðlega gekk að slökkva eldinn, töluverðar skemmdir eru á ruslagáminum eftir eldinn.
Útkall vegna elds í nýja tjaldsvæðahúsinu.
Slökkviliðið var kallað út í morgun klukkan 5:00 vegna elds í þjónustuhúsinu á tjaldsvæðinu. Mikill reykur var í austurhluta hússins þar sem salernsaðstaðan er og fóru reykkafarar inn í húsið. Í ljós kom og kveiknað hafði í handþurrku, töluverðar reykskemmdir urðu og á vegg þar sem blásarinn var staðsettur. Ekki er vitað um eldsupptök.
Síðastliðin föstudag tók Félag Slökkviliðsmanna í Grindavík þátt í fjörugum föstudegi á Hafnargötunni, margt var um manninn á Hafnargötunni og myndaðist mikil jólastemning.
Boðið var uppá heitt súkkulaði með rjóma sem sló heldur betur í gegn.
Á laugardeginum var FSG síðan með sitt árlega opna hús, sjúkrabíllinn var með okkur í ár og voru þeir á staðnum og sýndu sinn búnað.
Kveiktur var eldur og gestum boðið að prófa að slökkva í með slökkvitæki.
Viljum við þakka öllum þeim sem kíktu við fyrir innlitið og vonandi sjáumst við aftur að ári.
Opið hús verður hjá Slökkviliði Grindavíkur föstudaginn 2.des frá kl. 17-21 og laugardaginn 3. des frá kl. 13-18. Slökkvilið Grindavíkur, Björgunarsveitin Þorbjörn og Sjúkrabíll taka þar á móti bæjarbúum en þarna verður eitthvað fyrir alla, konur og karla. Forvarnarbúnaður til eldvarna og skyndihjálpa verður til sýnis og sölu og munu slökkviliðs- og björgunarsveitamenn leiðbeina fólki um notkun búnaðarins.
Tekið verður á móti slökkvitækjum til yfirferðar og endurhleðslu.
• Dufttæki á heimilum þarf að yfirfara á 3 ára fresti
• Léttvatnstæki þarf að yfirfara á 3 ára fresti
Fulltrúar frá Eldvörnum Grindavíkur verða á staðnum.
Reykskynjarar þurfa að vera helst í hverju einasta herbergi á heimilum, þá þarf að endurnýja á 10 ára fresti og skipta um rafhlöður á hverju ári. Nánari upplýsingar um forvarnir heimilanna er að finna á heimasíðu Slökkviliðs Grindavíkur www.slokkvilid.com.
Eldri borgurum í Grindavík er boðið að koma á staðinn eða hringja í síma 426-8380 og óska eftir aðstoð við athugun og uppsetningu á bæði reykskynjurum og slökkvitækjum. Sú þjónusta er að sjálfsögðu í boði slökkviliðsmanna.
Heitt verður á könnunni!
Stjórn Félags Slökkviliðsmanna í Grindavík vill fagna þeirri ákvörðun Bæjaráðs Grindavíkurbæjar, sem á fundi sínum þann 9. nóvember síðastliðinn, samþykkti að heimila Slökkviliði Grindavíkur að nýta sértekjur í tiltekin verkefni fyrir rekstur slökkviliðsins.
Telur félagið að þetta eigi eftir að koma sér til góðs fyrir slökkviliðið jafnt sem bæjarbúa alla.
Slökkviliðið var boðað út skömmu fyrir miðnætti í gær og tilkynnt um eld í vinnuvél í námunum við Melhól.
Það reyndist ekki vera um vinnuvél að ræða þegar slökkviliðið kom á vettvang heldur hafði verið kveikt í vörubrettum og fór ekki á milli mála að það hafði verið notað eldsneyti á staðnum.
Það er augljóst að þarna er verið að henda rusli fyrir utan leyfilega losunarstaði og er það miður að fólk skuli vera að stunda slíka iðju hér í Grindavík.

Slökkviliðið var kallað út í gærkvöldi kl. 20:28 vegna elds um borð í
Gnúp GK 11.
Þegar slökkviliðið kom á vettvang var reykur í klefum á trolldekki.
Reykkafarar fóru um borð og leituðu að eldi en ekkert fannst en fyrir utan inngangin var neyðarbauja sem hafði verið ræst og barst reykurinn inn í skipið, engar skemmdir voru á skipinu.